Ný gerð línuskífa
Í samstarfi við Arnar skipstjóra og útgerðarmann á mb Ragnari SF-550 höfum við smíðað nýja gerð af línuskífum. Markmiðið var að smíða slitþolna skífu sem fer vel með króka minnkar þar með veiðarfærakostnað. Eftir tveggja ára reynslu af skífunni segir Arnar að þörf á endurnýjun króka hafi minnkað til muna og einnig slitni skífan mun minna en hefðbundnar skífur. Við þökkum Arnari fyrir ánægjulegt og árangursríkt samstarf.
Lesa meiraMiklar endurbætur á fiskimjölsverksmiðju Skinneyjar-Þinganes hf
Á undanförnum árum hafa verið unnar stórfeldar endurbætur á fiskimjölsverksmiðju Skinneyjar-Þinganes hf undir stjórn Þórðar Jónssonar verksmiðjustjóra. Tæki og búnaður hefur verið endurnýjaður og endurbættur í nær öllum framleiðsluferlinum frá löndun til mjölgeymslu og lýsistanka. Í dag er verksmiðjan og umhverfi hennar eigendum og starfsmönnum til sóma. Fyrir okkur starfsmenn Vélsm. Foss ehf hefur verið ánægjulegt að fá tækifæri til þess að vera þátttakendur í þessari uppbyggingu.
Lesa meiraHlutir í andveltitank til Ástralíu
Í lok júlí sendi Vélsm. Foss ehf lokur o.fl. áleiðis til Ástralíu. Þessir hlutir fara í andveltitank sem settur verður um borð í ástralskt fiskiskip. Tankurinn og búnaður í hann er hannaður af okkur og samstarfsaðilum okkar; Stefáni Guðsteinssyni skipatæknifræðingi hjá Envo og Þorvaldi Sigurjónssyni rafmagnsverkfræðingi hjá Verkís.
Lesa meiraVökvakerfi – slöngutromla
Ms Jóna Eðvalds SF hélt til veiða á makríl og síld í lok maí með nýtt vökvakerfi fyrir fiskidælu og nýja slöngutromlu. Starfsmenn Vélsm. Foss ehf hönnuðu og smíðuð hvort tveggja og settu niður í skipið. Við hönnun á umræddum búnaði var m.a. lögð áhersla á góða orkunýtingu og sem besta meðferð á afla við dælinu um borð. Í þessu skyni var valið að nota stillanlegar stimpildælur í vökvakerfið og flæði- og þrýstistýra þeim úr brú skipsins. Slöngutromlan er byggð fyrir 2″ háþrýstislöngur og eina 1/2″ slöngu fyrir blæðingu frá dælumótor. Reynsla skipverja af tveggja-mánaða notkun á búnaðinum er góð og virðist hann vinna eins og til var ætlast.
Lesa meiraNý og velbúin skip farin til netaveiða
Ný skip Skinneyja-Þinganes hf; Skinney SF og Þórir SF eru farin til netaveiða og óskum við þeim velgengni á þeim veiðum sem og á öðrum veiðum í framtíðinni. Skipin eru án efa ein glæsilegustu og best búnu íslensku fiskiskipin í sínum skipaflokki. Vélsmiðjan Foss ehf vann að ýmsum verkefnum við hönnun, smíði og niðursetningu á tækjum og búnaði sem er um borð í skipunum. Má nefna að vökvakerfi skipana er hannað af okkur, allar vökvaknúnar vindur þar með talar netavindur og tilheyrandi tæki og búnaður til netaveiða.
Lesa meira